top of page
Writer's pictureRitstjórn

Þegar hlutirnir einfaldlega smella

Álfrún og Birgir eða Alyria og Bixxi eins og þau koma framm gefa út sitt nýjasta lag Running

Running fjallar um það hvernig hugurinn getur átt það til að mistúlka gjörðir því þær sýna ekki alltaf hina sálrænu hlið ástarinnar. Hvernig hægt er að of hugsa og lesa rangt í minnstu hluti í sambandi sem er einhvað sem að flest allir geta tengt við.

Hlustaðu á Running á youtube:

Parið Álfrún Kolbrúnardóttir og Birgir Örn Magnússon stofnuðu framleiðslufyrirtækið Flame Productions fyrir rúmu ári síðan eða árið 2021 eftir margra ára ævintýri í heimi kvikmyndagerðar og tónsmíðar. Flame býður upp á kvikmynda þjónustu, tónsmíði og markaðssetningu tónlistar ásamt því að halda uppi ferskum og spennandi lagalistum á Spotify.


Álfrún hefur skotið og unnið hin ýmsu tónlistarmyndbönd seinustu árin og hefur hún sótt í kvikmyndagerð tækniskólans ásamt því að ljúka erlendu kvikmyndanámi á netinu.

Birgir Örn smíðar lögin og hefur hann lokið við erlent tónlistarnám á netinu. Nú vinna þau hin ýmsu verk ásamt sínu teymi hjá Flame.


Ég hef haft áhuga á kvikmyndagerð frá því að ég var ung og gerði mikið af því að búa til ýmsar stuttmyndir með systur minni og vinkonum sem við tókum upp með símanum og klipptum saman, þessar stuttmyndir fá hins vegar ekki að líta dagsins ljós’’ Segir Álfrún og hlær

,,Ég kynntist unnusta mínum Birgir einnig mjög ung en það kviknaði almennilega í ástinni fyrir rúmum 6 árum og hefur hann verið að gera tónlist frá því hann var mjög ungur einnig.

Saman fórum við að semja okkar eigin lög ásamt því að vinna með ýmsu tónlistarfólki í skemmtilegum verkefnum bæði á kvikmynda og tónsmíða hliðinni og síðan tókum við það að okur að markaðssetja tónlistina fyrir þá sem að við höfum verið að vinna með og áttaðum okkur þannig á því að við höfum brennandi áhuga fyrir því.

Þetta einhvern veginn small allt saman hjá okkur eins og þetta hafi verið skrifað í skýin og tókum við því ákvörðum um að gera þetta að lífinu okkar og stofnum fyrirtækið Flame Productions þar sem við bjóðum upp á alla þessa þjónustu fyrir okkar tónlistarfólk.''

Samanlagt hafa lög þeirra tveggja náð vel yfir milljón hlustanir eða um 1,380.000 streymi yfir allar helstu streymisveitur og hægt er að nálgast texta og tónlistarmyndböndin þeirra á Youtube síðu Flame

Þú getur fylgst með parinu á samfélagsmiðlum Álfrúnar og Birgis. Flame production on instagram: https://www.instagram.com/flame_productions_iceland/

0 comments

Comentarios


bottom of page