Tónlistarmaðurinn og Idol keppandi Birgir Örn sem gengur undir listamannsnafninu Bixxi gefur út lagið sitt ,,Found Each Other’’ sem hann tók í fyrsta þætti af beinni útsendingu Idol Íslands.
Birgir vakti mikla athygli hér á landi í gegnum keppnina og hafa skoðanir verið á alla vegu en sjálfur segist Birgir hafa mest fundið fyrir stuðning og tilhlökkun fyrir því að lagið hans kæmi út.
Birgir átti sér draum um að fá lag í spilun á fm957 áður en hann steig á svið og sá draumur rættist á hans loka kvöldi þegar Daníel Ágúst einn af dómurum keppninnar segir ,,Beint á fm957 með lagið!’’. Teymi Fm957 hikuðu ekki við að hafa samband við Birgir og var lagið frumsýnt hjá þeim Birgi að mikilli gleði og þakklæti.
,,Lagið sjálft er um unga og villta ást, ástin sem hangir á bláþræði en er samt svo spennandi að báðir aðilar vilja ekki að hún endi’’ Segir Birgir.
Birgir er tónlistarmaður í húð og hár og hefur verið að skapa tónlist og þróast í þann listamann sem hann er í dag frá 11 ára aldri og tekið ýmis nám til að læra fræðina á bak við tónsmíði og tónvinnslu. Birgir missti föður sinn óvænt árið 2017 og áttaði sig á því hversu stutt lífið getur verið og tekið þá ákvörðun um að elta sína drauma, og hefur ekki litið til baka síðan.
Þú getur hlustað á lagið hans Found Each Other á Spotify hér.
Sjálfur segist Birgir vera vinna að mikið af nýrri tónlist og hægt er að fylgjast með Birgir á samfélagsmiðlum hans.
Comments